Þannig er það nú !
"seinni tíma" vinir
Ungur sveitungi
05.03.2006 15:20:52 / unnurolof

Smá skýrsla

Sko það er ekki það að ekkert hafi gerst hérna á Króknum síðan 23. des á síðasta ári,  málið er bara hvað  ég er löt að setjast niður við tölvuna þegar ég kem heim úr vinnunni svo er ég reyndar á tölvunámskeiði í fjarnámi svo að ég fæ eiginlega alveg nóg af tölvum þessa daganna.  En hérna kemur smá skýrsla frá Króknum.

 

Áramótin voru ekki alveg eins og best verður á kosið  hjá mér allavega  ég fékk nefnilega þessa rosalegu lungnabólgu á gamlársdag gat rétt svo eldað matinn  reyndar voru Jónas og Begga hjá okkur svo að það reddaðist með matinn og það allt.  En ég lá bara í rúminu eftir mat  rétt skreið fram til að sjá áramótaskaupið  og svo aftur til að sjá einn og einn flugeld.  Þessi bölvaða lungnabólga endist alveg í 20 daga og ég er ennþá að fá hóstaköst þetta er nú meiri leiðinda veikinn.

 

Að venju skelltum við litla fjölskyldan okkur svo á Reykhóla til að fara á þorrablótið (Finnbogi var reyndar heima hjá langömmu Dóru) og núna komu þau með okkur (eða við með þeim) Eyþór og Íris  svo komu Birgitta og Arnar líka þannig að Jónas og Begga voru með fullskipað lið  þetta árið.  Það var hörkustuð á þorrablótinu að venju alltaf svo gaman að koma í sveitina á þorrablót og hitta alla sveitungana.  Skemmtiatriðin voru rosalega góð og Bjarki á Seljanesi fór alveg á kostum, hann var algjör perla.:haha:

 

13. feb síðastliðinn verð svo “litla” einkabarnið mitt 10 ára  (vá vá vá hvað tíminn líður hratt) við voru með hörku veilsu hérna 11.feb sem endaði með því að það gistu 3 vinir hans hjá honum  og það var sko ekkert smá stuð hjá þessum töffurum þegar þeir áttu að vera sofnaðir   annars voru þeir nú bara nokkuð stiltir greyin enda allt voða góðir strákar.;)

 

17. feb skellti ég mér svo til London með vinnunni á árshátið  það var voða stuð og þónokkuð verðslað. 8|  Þessi ferð byrjaði reyndar í pínu ævintýri  en það var þannig að á leiðinni suður var frekar leiðinlegt veður á Holtavörðuheiðinn og bílinn hálfbilaður en við komust nú samt til Reykjavíkur og ég til Hafnafjarðar þar sem ég gisti hjá Hönnu  og Hanna mín takk rosaleg vel fyrir mig  það var svo æðislegt að geta hitt þig þó að það hafi bara verið svona stutt stund  verður bara lengra næst ekki satt.

 

Sennilega hefur margt fleira gerst hérna á Króknum síðustu mánuðina en ég bara man ekki eftir fleiru í bili.  Ég kannski skrifa eitthvað fleira hérna inn á næstu dögum (lofa samt engu)  

 

En þangað tiil næst  hafið þið það sem allra best   

bæó Unnur Ólöf


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.12.2005 12:40:11 / unnurolof

Gleðileg Jól

Jæja þá eru jólin rétt að detta inn.

Ég hef ekkert skrifað fyrr af því að talvan mín hrundi og þurfti í viðgerð reyndar er hún ennþá biluð þannig að núna er ég að stelast í vinnunni (uss ekki segja frá)

Það er helst að frétta að jólin geta alveg komið búin að fá slatta af jólakortum og pökkum og maturinn bíður eftir að vera borin á borð (ja kannski að ég eldi einhvern hluta af honum fyrst samt ;) )

Ég er búin að komast að því að haustið 2005  er haustið sem Finnbogi veiktist hvað haldið þið núna  hann er komin með lungnabólgu, hann ætlar greinilega að taka veikindi næstu (nú eða síðustu) ára  út á einu bretti.

En ég kom nú hingað inn til að segja þetta:

Ég og fjölskyldan mín óskum ykkur  öllum Gleðilegra Jóla og heillaríks komandi árs

heyrumst, skjáumst og vonandi sjáumst á nýja árinu

bæó Unnur Ólöf


» 12 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 22:12:41 / unnurolof

Jóla Jóla Jólastess

Jæja núna er jólastressið búið að ná tökum á mér:S  ég er búin að þrífa eldhússkápana að ofan (oj bara) :$ og skrifa jólakort í dag,  já og alveg rétt  loksins er ég búin að setja upp jólagardínurnar þetta er allt að koma hjá mér Baddi á bara eftir að setja upp útiserínuna ég gerið það sko ekki það þarf að standa upp á stól úti á svölum og það er ekki fyrir mig ónei

Í gær fórum við svo fjölskyldan til Akureyrar að klára jólainnkaupin ja reyndar tókst ekki að klára alveg en það er ekki mikið eftir núna, bara Friðrik bróðir (hann er alltaf einn af síðustu), Birgitta (veit reyndar hvað ég ætla að kaupa) Eyþór og Íris (allar uppástungur vel þegnar) og svo langamma Dóra (Höllustöðum).  Svo eru karlarnir mínir eftir líka en það er nú ekki svo flókið.  Sko ég vildi að ég gæti montað mig af því hvað ég var sniðug varðandi (mömmu og pabba) verð bara að skrifa það hérna inn á aðfangadag eftir 6 þær eru nefnilega ágætlega tölvuvæddar bæði mamma og Begga aldrei að vita nemað þær fylgist með hérna, ef þið eruð voða forvitndin þá getið þið hringt í mig væri sko alveg til í að heyra í ykkur (ó gæti ég hringt líka!! fattaði það ekki   thí hí :D

Hvernig gengur annars hjá ykkur að kaupa jólagjafir er það bara ég sem er í vandræðum með þetta jólagjafastúss?

Ég var að fatta að stekkjastaur kemur í nótt, það er svo fyndið á sjá glottið á Finnboga þegar minnst er á jólasveina,  hann er sem sagt orðin STÓR en mér sýndist nú skórinn samt vera úti í glugga.  

Já alveg rétt Akureyrar ferðin var ekki bara jóla við fórum líka á Harry Potter myndina mér finnst þessi mynd nú vera slökkust af þeim sem komnar eru, og mikið rosalega var hún löng tók alveg 2 tíma og 45 mín (með hléi auðvitað).

Jæja best að fara að leggja sig við heyrumst aftur seinna. 

Bæó Unnur Ólöf í jólastuði

P.S.   Ragga ég skal reyna að láta þig vita næst þegar ég fer á Skagann  það verður nú samt örugglega ekki fyrr en við erum orðnar 1 ári eldri.


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 14:57:45 / unnurolof

Hér er ég

Hæ hæ öll 

Jæja loksins loksins er ég byrjuð að skrifa aftur það er helst að frétta að ég er búin að fara til Köben það var rosalega gaman, búin að taka prófið mitt og fá einkun, Fingurinn er gróinn en er frekar skakkur og ljótur smá bólgin ennþá.

Núna þegar prófið er búið þá ætla ég að sleppa mér í jólaundibúning og jólastress, það er svo margt sem þarf að gera :S  ja reyndar geri ég nú ekki ALLT sem þarf að gera bara svona smá hluta af því ;)  ég trúi því nefnilega að jólin komi þó svo að ég þrífi ekki alla skápa að innan.  Hvað haldið þið?

Það er bara eitt sem ég get ekki gert fyrir þessi jól og finnst það mjög sorglegt og það er að fara til mömmu að gera laufabrauð, því miður Hanna mín þá getum við ekki hist á Skaganum til að gera laufabrauð og skemmta okkur :(8|  vonandi er það hægt fyrir næstu jól

Heyrðið þið ég er að hugsa um að hætta að skrifa núna er nefnilega í vinnunni og það er ekki nokkur friður til að skrifa fyrir þessum síma ;)  Skrifa kannski meira í kvöld eða allavega annað kvöls en þangað til bæ í bili

Unnur Ólöf upprisna


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.11.2005 12:59:48 / unnurolof

Smá biðlundd plís

Sko núna get ég lítið sem ekkert skrifað ég er nefnilega fingurbrotin, þetta blak,  lagast vonandi fljótlega en þangað til verið þið þolinmóð við mig  

Unnur Ólöf íþróttafíkill í sárum


» 25 hafa sagt sína skoðun

24.10.2005 16:50:19 / unnurolof

Áfram stelpur

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN STELPUR

.   

Ég hætti auðvitað að vinna kl 14:08 (eða reyndar 14:07)  og arkaði með hinum konunum hérna á Króknum niður aðalgötuna enduðum fyrir framan Kaffi Krók (hvað vitið þið ekki hvar hann er? ;)  ) og þar voru einhverjar ræður og fleira.  Ég verð nú að viðurkenna að ég stoppaði stutt á þessum útifundi heldur fór að fá mér kaffi og arkaði svo heim einmitt til að kaupa mér flug til Köben, það er mun mikilvægara en hærri laun ehaggi ?8|

Ég var að klára sem sagta aðklára að  bóka flug til Köben 17. nóv  við ætlum að skella okkur saman ég, Begga og Birgitta í svona kerlingaferð :lol:  átti maður ekki einmitt að gera eitthvað svona konu í dag.

Já ég var næstum búin að gleyma heklinu mínu það gengur svona glimrandi vel hjá mér ég er búin með hliðarólin og aðra dúlluna  þannig að ég er meira en hálfnuð ligga ligga lá   ooohhh ég er svo dugleg :haha:

Jæja nóg af monnti í bili við skjáumst seinna   Unnur Ó 


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.10.2005 08:05:49 / unnurolof

Öskur !!!!!

Skrifað helling hérna inn  en það datt allt út :whut:nenni ekki að skrifa þetta strax aftur heyri bara í ykkur seinna

Unnur Ólöf annsi pirruð yfir tölvudraslinu :evil:


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.10.2005 22:38:11 / unnurolof

Þessu trúið þið aldrei

Ó nei þessu trúir enginn!!!!

Tilbúin ?????

Ég Unnur Ólöf Halldórsdóttit (frá Kambi)  er að HEKLA  ég er að gera handavinnu úff það er greinilegt að þessi langvarandi veikindi hans Finnboga hafa haft áhrif á GEÐHEILSU móður hans:D    Nei nei látið þið ekki svona en sem sagt ég var í kvöld að byrja að hekla mér veski  byrjaði á hliðarólinni og vitið þið hvað ég þarf bara að hafa hana 200 cm langa það eru sko 2 metrar vá jafn stórt og Jón Karl bróðir (hann er reyndar bara 197 eða 8 ;) )   Vitið þið ég er bara mjög montinn af mér að hætta mér út í svona verkefni hver veit nema að þetta verði klárað á þessari öld :haha: leyfi ykkur kannksi að fylgjast með. 

Annars er bara allt fínt hérna hjá mér FB komin á næstum fullt og næstum aldrei heima,  en þegar hann er heima þá erum við að reyna að læra undir samræmd próf sem hann er að fara í íslensku og stærðfræði.

Núna er bara TÆPUR mánuður þangað til að Baddi kemur heim   ó já ég er sko farin að telja niður, mikið verður nú gott þegar hann kemur frá Sviss.

Jæja verð að halda áfram að hekla ég heyri í ykkur seinna

bæó Unnur Ólöf handavinnufrík:$


» 8 hafa sagt sína skoðun

01.10.2005 14:42:50 / unnurolof

Body pump

Hafið þið prófað að fara í tíma í Body pump????    Þetta eru voða fínir tímar sem taka geðveikt á, en sem sagt ég fór í svona tíma í gær og er alveg að drepast úr strengjum í dag get varla gegnið upp og niður stiga  og það er ekki sniðugt hérna hjá mér þar sem baðherbergið er niðri en allt annað uppi.  Í þessum tímum er maður að vinna með stöng og lóð og lyftir sem sagt stönginni (með lóðum á ef maður getur) í takt við tónlist það er svo sem ok á meðan á þessu stendur en djí daginn eftir!!!!   Svo er hann Eiður (kennari) voða hrifin því sem ég vill kalla æfing dauðans  en það er framstig  sko með stöng (og lóðum)  eins og það sé ekki nógu andsk....  erfit með sína eigin (yfir)þyngd  þó að maður sé ekki að bæta við þá þyngd kræst maður.  En samt sem áður eru þessir tímar rosalega góðir en því miður get ég bara farið 1x í viku af því að hinir tímarnir stangast á við blakið.   En í morgun þegar ég vaknaði og fann þessa líka "góðu" strengi ákvað ég nú bara að skella mér í ræktina aftur til að hlaupa úr mér strengina  og ég fór í ræktina og skokkaði í 40 mín  en helv....  strengirnir fóru samt ekkert.

Jæja nóg af bulli um líkamsrækt í dag.  Ég sit hérna inni í herbergi og er að hlusta á 9 ára gamalan son minn horfa á fótbolta, ManU er að keppa og það er bara fyndið að hlusta á hann hér koma nokkrir frasar:

  • Nei  STRÁKAR hvað eruð þið að gera?  (fengu á sig mark)
  • DÍ maður eruð þið aumingjar eða hvað.
  • YES loksins (sko það kom mark)
  • Við erum að vinna (annað mark)  
  • Ertu ekki að grínast (dæmt á hans menn)
  • Nei strákar þetta gengur ekki (annað mark á sig)
  • Þetta er algjört rugl
  • NNNNNEEEEEEIIIIII  ekki víti (er ekki viss hvort að það var dæmt)
  • HALLÓ  hvað er í gangi hjá ykkur strákar

Þessir frasar eru ekki endilega í réttri röð og listinn er í raun miklu lengri.  

Jæja ég ætla að skella mér á kaffihús með vinkonu minni heyrumst seinna BÆ BÆ Unnur Ólöf

E.S.  Finnbogi er loksins orðin frískur :o                                                       

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.09.2005 11:24:14 / unnurolof

Ég er hérna ennþá

Þetta verður mjög stutt hjá mér í dag bara að láta vita að ég er hérna ennþá, netið hjá mér er búið að vera mjög pirrandi síðustu daga komst bara inn á einstaka síður og alls ekki inn á blog.central. Jæja það er helst að frétta hérna að Finnbogi er að hressast við sjáum fram á að komast í skólann og vinnuna á mánudaginn. Verð að segja ykkur hvað hann Finnbogi á góða vini. Ígær kom nefnilega ein mamman með pakka til Finnboga frá bestu vinum hans (Sighvatur, Pétur og Viðar) í pakkanum var kassi með spilum (lúdó, milla og fl.), Svitaband (voða flott) og pínu nammi, ekki amalegt að eiga svona vini. Jæja nóg í bili við heyrumst seinna bless bless Unnur Ó

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.09.2005 15:46:08 / unnurolof

Nei hættið þið nú alveg.

Í dag eru 2 vikur síðan FB veiktist og læknirinn sagði á föstudaginn að eftir svona 2 vikur þá ætti þetta að fara að lagast sko þessi einkirningasótt, en nei nei í gær dag var minn maður komin í 40,5 stiga hita (tekið fram að ég er að Celcius ekki farenheit) og svo aftur yfir 40 stig í morgun þannig að ég fór einu sinni enn á sjúkrahúsið. Sem sagt núna er hann farin að sýna þessi dæmigerðu einkenni sem fylgja þessari veiki þetta sást bara í blóðinu á föstudaginn, núna er lifrin farin að bólgna, miltað farið að bólgna og eitlarnir allir bólgnir (ja kannski ekki allir) og hálsinn orðin rauður og þrútinn. Ég spurði lækninn má ég þa´búast við að vera heima með hann í 2 vikur í viðbót og hann sagði nei vonandi ekki en þó er aldrei að vita. VÁ ef við þurfum nú að vera heima í 2 vikur í viðbót úff maður þá verðum við orðin laglega pirruð. En það versta er samt að FB má ekki spila í fótbolta í einhverjar vikur eftir að hann nær sér og það finnst honum nú ekki mjöf sniðugt. Jæja eins og þið sjáið (lesið) þá hef ég ekkert að segja ykkur nema þessar veikinda sögur enda hitti ég engan og fer ekkert (nema á sjúkrahúsið) jæja besta að þreyta ykkur ekki meira á þessum veikindasögum . Ég bið að heilsa ykkur öllum í bili bæ bæ Unnur Ólöf

» 5 hafa sagt sína skoðun

23.09.2005 15:13:51 / unnurolof

Sjúkdómsgreining

´Jæja  ætla bara að láta ykkur vita að ég fór með Finnboga til læknis í dag í 3. skiptið á 2 vikum (móðursjúk kerling).  og við lentum á 3. lækninum og þessi tók blóðprufu (loksins)  og niðurstaðan er  einkirningssótt (kossasótt)  eitthver veirusýking sem er alltaf svona langvarandi.  Jæja það er nú gott að vita hvað er að og eins að fá að vita að maður er ekki alveg móðursjúkur barnið er veikt.

Jæja ætla að huga að sjúklingnum heyrumst fljótlega  Unnur Ó (ekki móðursjúk)


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.09.2005 11:01:06 / unnurolof

Úti er alltaf að snjóa

Í alvöru það er snjókoma hérna og allt orðið hvít,  birrr manni er bara kalt.

Annars er ekkert að frétta hérna hjá okkur á sjúkrahúsinu að Grenihlíð 8, ástandið bara eins.

Get bara ekki bullað meira núna reyni kannski aftur seinna í dag aldrei að vita nema að skáldagyðjan banki upp á, mér finnst það nú alveg tímabært hjá henni að kíkja á mig hún hefur nefnilega aldrei heimsótt mig   svindl.

bæ bæ Unnsa


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.09.2005 16:04:25 / unnurolof

Bullum bull

Í dag á ég í mikilli baráttu ég þarf nefnilega að velja um hvort ég fer í:

  1. Þjóðhagfræði
  2. Blak

Ef ég fer í bæði þarf ég að fá "pössunarpíu" í 5 klukkutíma  og það finnst mér nú vera fullmikið.  FB er nefnilega ennþá veikur :cry:.   Ég er nú samt að hugsa um að fara frekar í blak þar get ég allavega fengið útrás, ég hef svo mikla þörf fyrir að hreyfa mig  NNNOOOOTTTTT. þó að ekki veit samt af því.  Já ég fer frekar í blakið bið bara Steinu vinkonu að glósa vel fyrir mig í Þjóðhagfræði gott plan ekki satt.

Í dag voru 2 samstarfskonur mínar þær Unnur S og Dóra svo æðislegar að kíkja á mig í hádeginu (ég reyndar bauð þeim) bara svona rétt til að gá hvort að ég og FB værum heil á geði eftir alla þessa inniveru.  Mér skilst að niðurstaðan hafi  veriðsú að FB er alveg heill á geði bara lasinn en ég sé bara eins og ég er og ekkert sem hægt er að gera til að breyta því úr þessu,   þetta er allavega það sem stóð í  skýrslunni sem þær skiluðu af sér eftir heimsóknina.

OOOHHH  ég var að sjá að það er aftur ball með Skógarpúkunum í Vogalandi á laugardaginn og ég kemst ekki shit mér sem finnst svo gaman á balli með þeim :cry:.  Vonandi halda þeir bara ball fyrir mig seinna  sko bara fyrir mig thí hí 8) voða gaman að vera ein á balli.

Jæja nú finnst mér nú nóg komið af bulli í dag bullum bara meira seinna bæ í bili UÓH


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.09.2005 13:43:28 / unnurolof

Að læra eða ekki að læra !!!

Hvernig stendur á því að ég nenni frekar að setjast niður við tölvuna og skrifa nokkrar línur hérna á blogið heldur en að læra.  Núna er ég t.d. búin að hafa góða viku til að liggja yfir skólabókum og lesa og reikna en nei nei frekar sit ég við tölvuna les blog hjá öðrum, bloga sjálf eða er að leika mér í einhverjum tölvuleikjum (gold miner vegas er ennþá í uppáhaldi hjá mér).  Núna ætla ég sem sagt að skrif nokkrar línur hér inn og fara svo og skrifa eitthvað inn á nemanetið.

Í gær fór ég í blaktíma númer 2, og er sem betur fer ekki með svona miklar harðsperrur eins og síðast  en fékk í staðinn einn góðan marblett á (um hvað ætli það heiti) vöðvarn þarna fyrir neðan þumalin vonandi skiljið þið þetta.

Annars er allt eins hérna hjá okkur Finnboga við erum ennþá heima og bíðum eins og læknirinn sagði okkur að gera enda getum við svo sem ekkert annað gert.

Jæja núna ætla ég að reyna að læra pínu á meðan Finnbogi sefur blogga fljót aftur bæ bæ í bili.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3